Féll af reiðhjóli og slasaðist

Kona slasaðist þegar hún féll af reiðhjóli á brú í Elliðaárdalnum í morgun. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kollsteyptist konan af hjólinu þegar hún reyndi að taka fram úr öðrum hjólreiðarmanni. Konan lenti með hjólið milli grindar og steypu og skall harkalega í jörðina. Hún er mögulega viðbeinsbrotin. Sjúkraflutningamenn fluttu konuna sárþjáða á slysadeild að sögn SHS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert