Landgræðslufélag Biskupstungna fékk hæsta styrkinn úr Pokasjóði verslunarinnar í dag, 7,5 milljónir króna, til uppgræðslu rofabarða og endurheimt landgæða í Biskupstungum. Næsthæsta styrkinn fékk Vímulaus æska til að halda forvarnar og sjálfsstyrkingarnámskeið, 5 milljónir króna.
Pokasjóður verslunarinnar úthlutaði í dag rúmlega 100 milljónum króna til 122 verkefna á sviði umhverfismála, mannúðarmála, lista, menningar, íþrótta og útivistar. Úthlutunin fór fram í Salnum í Kópavogi. Að þessari úthlutun meðtalinni hefur Pokasjóður lagt rúmlega 700 milljónir króna til verkefna sem stuðla að almannaheill.
Um var að ræða tólftu úthlutun Pokasjóðs. Að sjóðnum standa 160 verslanir um land allt, þar á meðal matvöruverslanir, vínbúðir, húsgagnaverslanir, bókabúðir og aðrar sérvöruverslanir. Pokasjóður fær tekjur sínar af sölu plastburðarpoka í þessum verslunum. Sjóðurinn úthlutar styrkjum til verkefna á sviði umhverfismála, mannúðarmála, lista, menningar, íþrótta og útivistar.
Alls sóttu 900 aðilar um styrki úr Pokasjóði, fyrir samtals um 900 milljónir króna.