Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, sagði í viðtali á Ríkissjónvarpinu að yngri kynslóð framsóknarmanna muni fylkja sér bak við Jón Sigurðsson og hefur fulla trú á að Jón komist á þing. Flokksmenn allir hljóti að styðja Jón áfram í formannssæti flokksins.