Dæmdur í fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 4 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn sambýliskonu sinni í júní í fyrra. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 454 þúsund krónur í bætur.

Brotið þótti heiftúðugt og hrottalegt og var litið til þess við ákvörðun refsingar og þess að brotið var framið á sameiginlegu heimili þeirra þar sem sofandi börn voru. Við árásina skarst konan á höfði og 4 framtennur brotnuðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert