Erlendur ferðamaður slapp með minniháttar áverka þegar hann hrasaði er hann var á göngu í Surtshelli síðdegis í dag. Maðurinn fékk skurð á höfði og að sögn lögreglu blæddi talsvert. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var manninum til happs að sjúkraflutningamenn voru við æfingar í næsta nágrenni og komu manninum fljótt til aðstoðar. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Akraness þar sem gert var að sárum hans.