Bíll fór út af Nýbýlavegi í Kópavogi í morgun og lenti á trjám, sem standa við veginn. Kona, sem ók bílnum, var flutt á slysadeild en ekki var talið að meiðsli hennar væru alvarleg, að sögn lögreglunnar. Ekki er vitað hvers vegna bíllinn fór út af veginum.