Hvasst við suðurströndina í dag

Í morgun var austlæg átt, 5-10 metrar á sekúndu en 10-20 m/s við suðurströndina, hvassast á Stórhöfða. Bjartviðri var að mestu vestanlands, annars skýjað og þurrt. Kaldast var tveggja stiga frost í Möðrudal en hlýjast 7 stiga hiti á Garðskagavita.

Veðurstofan spáir vaxandi austlægri átt, víða 8-15 m/s í dag en 15-20 með suðurströndinni nálægt hádegi. Með morgninum fer að rigna sunnantil á landinu með morgninum, en þurrt verður að mestu um landið norðanvert. Hægari vindur verður seint í kvöld og úrkomuminna. Hiti verður 3 til 12 stig að deginum, hlýjast norðvestanlands í dag, en sunnanlands á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert