Fimm ungir menn á tvítugsaldri réðust á ökumann bíls sem þeir höfðu lent í árekstri við í Grafarvogi í gærkvöldi. Bílarnir voru að mætast og rákust saman á gatnamótum þegar annar beygði til vinstri. Voru mennirnir allir ölvaðir og þurfti nokkurn fjölda lögreglumanna til að handtaka þá. Einn þeirra var fluttur á slysadeild.