Landsbjörg styrkt af N1 næstu ár

Slysavarnafélagið Landsbjörg mun njóta víðtæks stuðnings N1 í störfum sínum næstu árin. Samningur þessa efnis var undirritaður við upphaf landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið er í Reykjanesbæ um helgina.

Stuðningur N1 felst bæði í árlegu fjárframlagi til starfseminnar á landsvísu og í veglegum afsláttum af öllum þeim bílavarahlutum, aukahlutum, eldsneyti og bílaþjónustu sem deildirnar þurfa um land allt.

Sigurgeir Guðmundsson, formaður SL, segir samninginn sérstaklega hagstæðan, því í honum sameinist fjárhagsstuðningur og lækkað verð á bílavörum og eldsneyti sem eru veigamikill útgjaldaliður fyrir björgunarsveitir um land allt. "Þetta samstarf hentar mjög vel fyrir okkur. Við erum til dæmis með rúmlega hundrað sveitir og N1 er með rúmlega hundrað útsölustaði, þannig að báðir aðilar teygja sig hringinn i kringum landið".

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert