Karlmaður slasaðist um ellefuleytið í gærkvöldi á Laugarvatni, maðurinn stóð á lækjarbakka fyrir neðan hjólhýsasvæðið, árbakkinn gaf sig með þeim afleiðingum að maðurinn féll niður í urð og fótbrotnaði illa á báðum fótum. Kalla þurfti til björgunarsveitarmenn til að flytja manninn í sjúkrabíl, en hann var í kjölfarið fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús. Nokkur erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt og voru m.a. tveir teknir grunaðir um ölvunarakstur.