Leiðsögumönnum með hreindýraveiðum hefur verið gert heimilt til að sækja fellda bráð á léttum vélknúnum ökutækjum að lágmarki með sex hjólum ef leiðsögumaður metur það svo að ekki sé hætta á náttúruspjöllum. Heimildin gildir þó eingöngu þar sem dýr hafa verið felld fjarri vegum.
Samkvæmt reglugerð um takmarkanir á umferð um náttúru Íslands, sem sett var í júní 2005, hefur verið óheimilt að aka vélknúnum ökutækjum utan vega nema á snævi þakinni og frosinni jörð svo fremi að ekki skapist hætta á náttúruspjöllum. Að auki hefur verið heimilt að aka utan vega við ákveðin störf, t.d. landgræðslu, heftingu landbrots, vegalagnir, björgun og landbúnað.
Frá því þessi reglugerð var sett hafa komið fram athugasemdir þess efnis, að leiðsögumenn með hreindýraveiðum þyrftu að njóta sams konar undantekningar. Því til stuðnings hefur verið vísað til mikilvægis þess að koma bráð óskemmdri til byggða en víða hagar því þannig til að veiðislóð hreindýra er fjarri akstursleiðum. Því hefur í sumum tilvikum reynst ógjörningur að koma skrokkum felldra dýra tímanlega í viðunandi kælingu og vinnsluaðstöðu.