Á 171 km hraða á Miklubraut

Fjörutíu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Grófustu brotin voru framin á Hringbraut á föstudagskvöld þar sem tæplega þrítugur ökumaður mældist á 142 km hraða og á Miklubraut aðfaranótt laugardags þar sem 17 ára ökumaður ók á 171 km hraða.

Báðir þessir ökumenn voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða. Í bíl piltsins var einn farþegi, 16 ára stúlka. Fimm aðrir ökumenn eiga ökuleyfissviptingu yfir höfði sér en einn þeirra ók langt yfir leyfðum hámarkshraða í íbúðargötu.

Í gær voru sömuleiðis nokkrir ökumenn staðnir að hraðakstri. Fjórir þeirra mega búast við ökuleyfissviptingu en einn þeirra var stöðvaður á Hafnarfjarðarvegi í gærkvöldi. Sá ók á 144 km hraða.

Þrjátíu og tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á síðasta sólarhring. Á sama tímabili voru skráningarnúmer fjarlægð af sautján ökutækjum sem öll voru ótryggð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert