Eiríkur Finnur Greipsson, aðstoðarsparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestfirðinga hefur ákveðið að halda áfram störfum fyrir sjóðinn en hann tilkynnti í síðustu viku að hann hefði sagt upp störfum.
Á fundi stjórnar sjóðsins sem haldinn var á Patreksfirði í gær, kom fram sú eindregna ósk frá stjórn sjóðsins að Eiríkur Finnur endurskoðaði þá ákvörðun sína að óska eftir starfslokum hjá sjóðnum og varð hann við þeirri beiðni.
Eiríkur Finnur hefur starfað við Sparisjóð Vestfirðinga frá stofnun hans en þar áður starfaði hann hjá Sparisjóði Önundarfjarðar.