Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna Frumherja og Aðalskoðunar og segist telja, að samruni félaganna hindri virka samkeppni á markaði fyrir skoðun skráningarskyldra ökutækja og markaðnum fyrir skoðun á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti vinnsluleyfishafa í sjávarútvegi.
Frumherji keypti í janúar allt hlutafé Aðalskoðunar og segir Samkeppniseftirlitið, að í því felist samruni félaganna tveggja í skilningi samkeppnislaga. Félögin séu hin einu sem starfi á fyrrgreindum mörkuðum og því sameiginlega í einokunarstöðu þar. mörkuðum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að samruni félaganna hindri virka samkeppni á þessum mörkuðum og vinni þannig gegn markmiði samkeppnislaga.