Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði áður en hann gekk á fund Geirs H. Haarde, formanns flokksins í Ráðherrabústaðnum, að hann hefði trú að því að spennandi tímar væru framundan í stjórnmálum og væntanlegt stjórnarsamstarf gæti verið upphaf einhvers, sem muni skila þjóðinni miklum árangri.
Bjarni sagðist aðspurður ekki vita hvort honum yrði boðið ráðherraembætti en taldi það þó geta verið inni í myndinni.
Gert er ráð fyrir því að Geir ljúki viðræðum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins nú á fimmta tímanum.