Þrjátíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í einu þeirra átti í hlut tæplega fjögurra ára drengur. Sá átti að bíða í fjölskyldubílnum rétt á meðan mamma hans þurfti að bregða sér frá en eins og barna er gjarnan siður fór sá litli að fikta í búnaði bílsins.
Þetta kemur fram í frétt á Lögregluvefnum.
Þegar mamman sneri til baka hafði bílinn hennar, sem hún skyldi eftir í gangi á ónefndu bifreiðastæði, færst úr stað og rekist utan í tvo aðra kyrrstæða bíla. Drenginn sakaði ekki og skemmdir á bílunum voru minniháttar.