Éljagangur og krapi á Holtavörðuheiði

Éljagangur og krapi er nú á Holtavörðuheiði og varasamt að vera þar á ferð á illa búnum fólksbílum, segir í tilkynningu frá lögreglunni í Borgarnesi í kvöld. Á heiðinni er norðan 14 m/s og tveggja stiga frost. Lögreglan segir að ekki hafi orðið nein teljandi vandræði á heiðinni enn sem komið er.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert