Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu Öryrkjabandalagsis um að viðurkennt yerði, að komist hefði á samkomulag um að grunnlífeyrir þeirra, sem metnir hefðu verið 75% öryrkjar eða meira 18 ára eða yngri, skyldi tvöfaldast en lífeyrisviðauki þeirra, sem metnir hefðu verið með sömu örorku 19 ára eða eldri, fara lækkandi um 2,04% fyrir hvert aldursár eftir 18 ára aldur til og með 66 ára aldurs, að teknu tilliti til skerðingarákvæða í lögum. Staðfesti dómurinn þannig dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.
Öryrkjabandalagið krafðist einnig viðurkenningar á því að ríkinu bæri að greiða sérhverjum öryrkja nánar tilgreindar skaðabætur í samræmi við kröfuna.
Hæstiréttur segir, að kröfur Öryrkjabandalagsins hafi verið reistar á því, að komist hefði á bindandi samningur þessa efnis milli aðila, sem kynntur var á blaðamannafundi 25. mars 2003 og að ríkið hefði vanefnt hann.
Dómurinn vísar m.a. til þess, að í fréttatilkynningu, sem dreift var á blaðamannafundinum, hafi meðal annars fram að gert væri ráð fyrir allt að tvöfaldri hækkun grunnlífeyris þeirra sem yngstir yrðu öryrkjar og að skipaður yrði starfshópur til að gera endanlegar tillögur að breytingum á lögum um almannatryggingar.
Hæstaréttur vísar til þess, að fljótlega eftir kynningu samkomulagsins hefði komið í ljós að forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins töldu að samið hefði verið um ákveðna hlutfallslega lækkun grunnörorkulífeyris frá tvöfölduninni, sem miðuð var við 18 ára aldur. Í fyrirliggjandi gögnum, sem lutu að umræddu samkomulagi, hafi hvergi komið fram að bundið hefði verið fastmælum hver hækkun yrði á lífeyri þeirra, sem yrðu öryrkjar á aldrinum frá 19 til 67 ára.
Ekki hefði heldur verið getið um hver kostnaðurinn væri af þessum breytingum að öðru leyti en því, að í fréttatilkynningunni sagði að hann yrði rúmur milljarður króna á ársgrundvelli. Gegn þessu var ekki talið að Öryrkjabandalagið hefði sannað, að sú tilhögun, sem dómkröfur þess byggðust á, hefði verið þáttur í umræddu samkomulagi og að ekki hefði annað verið leitt í ljós en að koma hafi átt í hlut starfshópsins, sem skipaður var, að móta nánari tillögur í þessum efnum.