Hagar ætla að gera aðra tilraun til að fá heimild til innflutnings á nýsjálensku lambakjöti en Guðni Ágústsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, hafnaði beiðni frá Högum þar um fyrir skömmu.
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segist vongóður um að nýr landbúnaðarráðherra, Einar K. Guðfinnsson, beiti sér í ríkari mæli með hagsmuni neytenda í huga.
Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.