Veittist að starfsmönnum skemmtistaðar

Einn maður var handtekinn á skemmtistað í Reykjanesbæ í nótt eftir að hann veittist að dyraverði og barþjóni á staðnum. Hlaut dyravörðurinn áverka í andliti. Að sögn lögreglu var maðurinn, sem var undir áhrifum áfengis, vistaður í fangaklefa og verður yfirheyrður með morgninum þegar áfengisvíman verður runnin af honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert