Mannlaus fólksbíll rann ofan í Jökulsárlón í kvöld um klukkan 19 en stöðvaðist í flóðvarnargarði. Eigandinn er erlendur ríkisborgari sem er á ferðalagi hér á landi. Fenginn var kranabíll frá Höfn til að ná bílnum upp og aðstoðaði lögreglan á Höfn við það.