Portúgalski sendiherrann boðar komu sína hingað

Sendiherra Portúgals í Noregi, sem einnig er sendiherra hér á landi, hefur boðað komu sína hingað til lands vegna frétta í Portúgal um slæman aðbúnað portúgalskra verkamanna við Kárahnjúka. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins og jafnframt, að vefdagbækur nokkurra portúgalskra starfsmanna segi aðra sögu en þá sem lýst hefur verið undanfarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert