Lögregla höfuðborgarsvæðisins hefur nú í haldi mann á fertugsaldri og konu á þrítugsaldri sem lögreglan lýsti eftir vegna gruns um aðild þeirra að því að hafa lokkað 67 ára gamlan karlmann inn í húsasund við Laugarveg og rænt hann og misþyrmt á aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var handtekinn í gær en konan gaf sig sjálf fram síðar. Enn á eftir að yfirheyra þau.