Ungir íslenskir karlar hafa helst áhuga á að verða smiðir og lögfræðingar en ungar konur hafa mestan áhuga á starfi hjúkrunarfræðinga eða lækna. Þetta kemur m.a. fram í könnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Jafnréttisráð um viðhorf ungmenna á aldrinum 18-23 ára til starfa og launa. Í 8 tilfellum af 10 reikna karlar með hærri launum fyrir starf en konur.
Könnunin var gerð í mars og apríl. Endanlegt úrtak var 786 manns og svarhlutfall 53,7%. Spurt var um áhuga ungmennanna á að gegna 10 mismunandi störfum, hvað þau teldu líklegt að þau fengju fyrir hvert starfanna og hvort þau teldu viðkomandi starf frekar hæfa konum eða körlum eða kynjunum jafnt.
Ekki var mikið um það að svarendur teldu störf hæfa öðru kyninu hinu frekar en aðeins þegar kemur að smiðum voru yfir helmingur svarenda slíkrar skoðunar. Flest önnur störf töldu langflestir svarenda að hæfi kynjunum jafn vel.
Áhugi ungmennanna á að gegna ákveðnu starfi er hins vegar nokkuð mismunandi en meðal karla hafa flestir áhuga á að verða smiðir (33,7%) eða lögfræðingar (31,5%) en hjá konum er hjúkrunarfræðingur í fyrsta sæti (37,9%) og læknir í öðru sæti (36,4%). Fæstir karlar hafa hins vegar áhuga á starfi launagjaldkera (2,9%) og hjúkrunarfræðings (5,3%). Konur hafa hins vegar minnstan áhuga á starfi verðbréfamiðlara (5,2%) og kerfisstjóra (6,4%).
Jafnréttisráð hefur ákveðið að senda könnunina til allra grunn- og framhaldsskóla í von um að niðurstöður verði nýttar í kennslu og fræðslu um íslenskan vinnumarkað og sem innlegg í jafnréttisumræðu í skólunum.