Laun í fjármálaþjónustu hækka mest

Vísitala launa á fyrsta ársfjórðungi hækkaði um 4,1% frá fyrri fjórðungi, samkvæmt útreikningum Hagstofu. Á sama tímabili hækkaði vísitala launa á almennum vinnumarkaði um 4,2%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest eða um 5,9% en minnst hækkuðu regluleg laun verkafólks, 3,3%. Mest hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 6,5% en minnst var hækkunin í iðnaði, 3,4%. Vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn hækkaði um 3,7% á sama tímabili.

Frá fyrsta ársfjórðungi 2006 hefur vísitala launa hækkað um 11%. Á sama tímabili hækkaði vísitala launa á almennum vinnumarkaði um 11,7% og vísitala launa opinberra starfsmanna um 9,5%.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kveða á um 2,9%-3,65% hækkun launataxta frá 1. janúar 2007. Í hækkun vísitölunnar gætir einnig áhrifa sérstaks samkomulags Sambands íslenskra bankamanna og Samtaka atvinnulífsins frá 28. ágúst sl. sem kvað á um sérstakar taxtahækkanir frá 1. janúar 2007 til samræmis við hliðstætt samkomulag Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá 22. júní 2006. Samkvæmt almennum kjarasamningum opinberra starfsmanna hækkuðu launataxtar þeirra um 2,9-3% um áramót.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert