Þriggja ára ökumaður slapp ómeiddur úr ökuferð

Þriggja ára drengur slapp með skrekkinn þegar hann komst í fjölskyldubílinn og fór í óvænta ökuferð. Bíllinn stóð við heimili drengsins en þegar faðir hans leit í innkeyrsluna var fjölskyldubíllinn á bak og burt og drengurinn sömuleiðis.

Lögreglan segir, að þegar betur var að gáð hafði ökutækið runnið stjórnlaust úr innkeyrslunni og yfir tvær götur og tvo grasbala og hafnað loks á verslunarhúsi nokkra tugi metra frá heimilinu.

Lögreglan segir að mikil mildi þyki að ekki fór verr en töluverð umferð er um aðra götuna sem bíllinn rann yfir. Bíllinn, sem er beinskiptur, var ekki í gangi þegar drengurinn fór að fikta í honum en talið er að hann hafi átt við handbremsuna með þessum afleiðingum. Drengurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar en ekki er talið að honum hafi orðið meint af. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur.

Þetta er í annað sinn á fáeinum dögum þar sem smábarn kemur við sögu í umferðaróhappi á höfuðborgarsvæðinu. Í síðustu viku átti tæplega fjögurra ára drengur hlut að máli þegar ekið var á tvo kyrrstæða bíla. Sá drengur var skilinn eftir í bíl sem var í gangi á bifreiðastæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert