Bílvelta í Heiðmörk

Bíll valt í Heiðmörk og lenti á hvolfi utan vegar er bílstjórinn missti stjórn á honum í krappri beygju á fjórða tímanum í nótt. Lögregla og sjúkraliðar voru kallaðir til eftir bílveltuna sem varð á Heiðmerkurvegi í nótt. Í bílnum voru fimm ungmenni og höfðu þau að sögn öll verið í bílbelti og komust þau hjálparlaust út úr bílflakinu, voru þau flutt á slysavarðstofu LHS í Fossvogi til rannsóknar.

Ekki er talið að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða og ekki lék grunur á ölvunarakstri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert