Skerðingin sem Hafró mælir með á þorskaflanum er gríðarleg, og heldur meiri en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagðist hafa reiknað með. Hann vildi þó taka fram, að hann ætti eftir að kynna sér tillögur Hafró nánar.
„Þetta er þó ekki allt svart, ýsan er sterk, síldin er sterk og loðnan,“ sagði Björgólfur í samtali við mbl.is.