Samherji frestar framkvæmdum á Dalvík

Úr frystihúsi Samherja á Dalvík.
Úr frystihúsi Samherja á Dalvík. mbl.is/Kristján

Samherji hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við uppbyggingu landvinnslunnar á Dalvík um eitt ár og skoða málið að nýju næsta vor. Segir í tilkynningu frá fyrirtækinu, að þetta sé ákveðið í ljósi þess, að augljóst sé að leikinn verði varnarleikur í íslenskum sjávarútvegi á næstu misserum. Gengi íslensku krónunnar, hátt vaxtastig og niðurstöður Hafrannsóknastofnunar um ástand þorskstofnsins hafi veikt stöðu sjávarútvegsins mjög mikið.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, tilkynnti í febrúar að nú væri tími til að sækja fram og segir fyrirtækið, að á undanförnum mánuðum hafi þeirri yfirlýsingu verið fylgt eftir með kaupum á skipum og fyrirtækjum, bæði hér heima og erlendis.

Einn liður í fyrirhugaðri sókn Samherja séu áform um að byggja upp landvinnslu félagsins á Dalvík og gera hana þá fullkomnustu í heimi. Mikil vinna hafu verið lögð í undirbúning þess verkefnis á síðustu mánuðum og nú liggi allar áætlanir fyrir.

Í millitíðinni hafi allar ytri aðstæður landvinnslu á Íslandi hins vegar snúist mjög til verri vegar. Hráefnisverð hafi hækkað um 30% frá áramótum og gengi krónunnar styrkst um 10% á sama tíma. Þessar breytingar ásamt öðrum kostnaðarhækkunum innanlands hafi það í för með sér að framlegð vinnslunnar hafi minnkað verulega. Þá sé ný veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar mikið áfall og þau tíðindi séu síst til þess fallin að auka fyrirtækum í sjávarútvegi bjartsýni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert