Bílvelta milli Hvolsvallar og Hellu

Bílvelta varð á Suðurlandsvegi á móts við Lambhaga um klukkan 15.30 í dag. Ökumaður á jeppling tók augun af veginum og missti bílinn útaf. Hann fór þrjár veltur og telur lögreglan að bíllinn sé mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Ökumaður fann fyrir eymslum í baki og var farið með hann á heilsugæslustöð á Hvolsvelli. Lögreglan telur fyrir víst að bílbeltin hafi bjargað ökumanninum sem var einn í bílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert