Bæjarráð Bolungarvíkur hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með nýútkomna skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um ástand nytjastofna á Íslandsmiðum en þar er m.a. lagt til að þorskkvóti verði skertur um þriðjung. Segir bæjarráðið, að nái tillögur stofnunarinnar fram að ganga þýði það að aflaheimildir Vestfirðinga af slægðum þorski skerðist um 6000 tonn og um 1200 tonn sé aðeins horft til Bolungarvíkur. Á ársgrundvelli megi ætla að útflutningsverðmæti frá Bolungarvík dragist af þessum völdum saman um 300 milljónir króna.
„Ljóst er að þessar tillögur Hafrannsóknarstofnunar munu hafa gríðarleg áhrif nái þær fram að ganga að hluta til eða öllu leyti. Tillögurnar eru til þess fallnar að auka enn á samþjöppun sjávarútvegi þar sem stærri fyrirtæki kaupa upp þau minni. Atburðir síðustu vikna sýna að slík viðskipti geta auðveldlega kippt stoðunum undan tilvist sjávarþorpa á landsbyggðinni. Þegar lagt var upp með aflamarkskerfið árið 1983 var markmiðið að stækka þorskstofninn og styrkja byggðir í landinu. Það hefur algjörlega brugðist," segir í ályktuninni.