Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins eru nú í húsnæði Mjólkursamsölunnar og eru að skoða og bera út gögn. Magnús Ólafsson, aðstoðarforstjóri MS, vildi ekki tjá sig nánar um málið þegar Fréttavefur Morgunblaðsins leitaði upplýsinga en sagði að fréttatilkynning yrði send út von bráðar.