Capacent hefur unnið viðhorfskönnun fyrir Norðurveg um afstöðu gagnvart nýjum hálendisvegi um Kjöl. Um var að ræða símakönnun og var úrtakið 3200 manns.
Þegar spurt var á landsvísu kom í ljós að 52,6% eru frekar eða mjög hlynnt að lagður veðri heilsársvegur um Kjöl. 41% er mjög eða frekar andvíg framkvæmdinni.
Um 45% aðspurðra töldu að ferðum þeirra milli áfangastaða á Norður- og Suðurlandi myndi fjölga með framkvæmdinni en 55% töldu að þeim myndi ekki fjölga.
Í tilkynningu kemur fram að stuðningur við framkvæmdina er mestur á Akureyri og nágrenni eða 67% og aðeins 24% á móti. Hann er næst mestur á Árborgarsvæðinu eða 65% með framkvæmdinni en 26,8% á móti. Það er einnig meirihlutastuðningur við framkvæmdina á höfuðborgarsvæðinu eða 51,4% en 41,3% á móti. Konur eru hlynntari framkvæmdinni en karlar og þeir sem yngri eru, eru hlynntari framkvæmdinni en þeir sem eldri eru. Þeir sem þurfa að fara hvað oftast milli Norður- og Suðurlands eru hlynntari framkvæmdinni en þeir sem sjaldnar fara.
Í fréttatilkynningu segir Halldór Jóhannsson stjórnarformaður Norðurvegar ehf. þetta ekki koma sér á óvart og þessi niðurstaða sé hvatning fyrir stjórn félagsins til þess að halda ótrauð áfram í því að vinna málinu framgang. „Stuðningur við verkefnið á okkar nærsvæði sem og á Suðurlandi er yfirgnæfandi. Næstu skref verða að koma verkefninu á endurskoðaða samgönguáætlun og væntum við góðrar samvinnu við nýjan samgönguráðherra um það mál," að því er segir í tilkynningu.