Framboðið til Öryggisráðsins er norrænt samstarfsverkefni

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. mbl.is/RAX

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag í Helsinki en Finnar gegna formennsku í norrænu ráðherranefndinni um þessar mundir. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafi leitt umræður um loftslagsmálin.

Þar segir að ráðherrarnir hafi verið sammála um að Norðurlöndin ættu að gegna lykilhlutverki í að raunhæf og metnaðarfull niðurstaða náist á ráðherrafundi Loftslagssamningsins í Kaupmannahöfn 2009.

Ráðherrarnir ræddu um svæðisbundið samstarf, þ.m.t. norðurslóðamál og hugmyndir um hvernig efla megi vettvang Eystrasaltsráðsins. Einnig voru rædd málefni Balkanskaga, einkum staða Kósóvó, alvarlegt ástand mála fyrir botni Miðjarðarhafs og neyðarástandið í Darfúr.

Fyrir fundinn kynnti utanríkisráðherra sér starfsemi íslenskra fyrirtækja í Finnlandi og undirbúning stofnunar Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins í Helsinki þann 20. júní n.k.

Ráðherra heimsótti meðal annars útibú Kaupþings í Finnlandi og aðalskrifstofur Norræna fjárfestingarbankans.

Að fundi loknum átti ráðherra fund með finnskum starfsbróður sínum, Ilkka Kanerva, og ræddu þau samskipti ríkjanna, m.a. viðskipti og fjárfestingar. Þau ræddu einnig samstarf Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og framboð ríkjanna til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Ísland er í framboði til öryggisráðsins fyrir tímabilið 2009-2010 en Finnland fyrir tímabilið 2013-2014. Rætt var um helstu áherslur landanna og hvernig þau geta unnið saman á vettvangi öryggisráðsins.

Öll Norðurlöndin vinna saman að því markmiði að Ísland og Finnland nái kjöri til öryggisráðsins fyrir ofangreind tímabil og líta á framboðin sem norræn framboð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert