Sláttur hafinn á Suðurlandi

Sláttur er hafinn undir Eyjafjöllunum.
Sláttur er hafinn undir Eyjafjöllunum. mbl.is/Árni Torfason

Sláttur hófst í morgun á bænum Ásólfsskála undir Eyjafjöllum. Að sögn Sigurðar Grétars Ottóssonar, bónda á Ásólfsskála, er um að ræða 3,6 ha spildu sem slegin er nú. Í spildunni er blandaður gróður af vallarfoxgrasi og háliðagrasi. Ætlunin er að rúlla heyið, að því er fram kemur á vef Búnaðarsambands Suðurlands.

Sprettutíð hefur verið afar góð síðustu daga en gróður tók vel við sér þegar tók að rigna nú um mánaðamótin. Líklegt er að sláttur hefjist hjá fleiri bændum á Suðurlandi um eða eftir helgi.

Í fyrra hófst sláttur 13. júní, einnig undir Eyjafjöllum og árið þar á undan 4. júní. Sláttur hefst því með fyrra fallinu í ár, samkvæmt vef Búnaðarsambands Suðurlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert