Tveir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að slagsmál brutust út á fimmta tímanum í nótt fyrir utan skemmtistað í Reykjanesbæ. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var annar þeirra var fluttur til frekari skoðunar á Háskólasjúkrahúsið í Reykjavík. Einn var handtekinn vegna málsins og gistir hann fangaklefa vegna frekari málsrannsóknar.