Lýst eftir vitnum að tilraun til nauðgunar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að tilraun til nauðgunar sem átti sér stað á Hverfisgötu á móts við Þjóðleikhúsið um sexleytið í morgun. Karlmaður um þrítugt, dró samkvæmt tilkynningu frá lögreglu, konu sem er á tvítugsaldri inn í port og reyndi að nauðga henni þar. Stúlkunni tókst með harðfylgi að komast undan árásarmanninum.

Árásarmaðurinn er talinn vera um þrítugt, grannvaxinn, 185-190 cm á hæð, með stutt mjög dökkt eða svart hár, svarta skeggbrodda eða svart skegg. Hann var klæddur í rauða eða vínrauða peysu eða jakka og svartar buxur.

Konan var flutt á neyðarmóttöku fyrir þolendur í kynferðisbrotum á Landspítalann í Fossvogi.

Þeir sem kynnu að hafa upplýsingar um árásarmanninn eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna það til lögreglu í síma 444-1000 eða 444-1100.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert