Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna af lögreglunni á Akranesi í liðinni viku. Þeir voru færðir til rannsóknar og reyndist grunurinn á rökum reistur. Annar ökumaðurinn hafi í fórum sínum 20. gr af amfetamíni. Þá var einn ökumaður stöðvaður grunaður um ölvun við aksturinn.
Athygli vekur að nú er svo komið að fleiri ökumenn eru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna, en þeir sem grunaðir eru um ölvun við akstur, að því er segir í dagbók lögreglunnar á Akranesi.