Gréta Ingþórsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Geirs H. Haarde forsætisráðherra, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Gréta er fædd í Reykjavík 1966. Hún hefur verið framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna sl. tæp átta ár. Hún var útgáfustjóri aðalnámskrár í menntamálaráðuneytinu 1998-1999 og þar áður blaðamaður á Morgunblaðinu.
Hún er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, með BA-próf í þýsku frá Háskóla Íslands og hefur verið í meistaranámi í hagnýtum hagvísindum við Háskólann á Bifröst.
Gréta er í sambúð með Gísla Hjartarsyni. Þau eiga tvö börn á lífi.