Skúta strand við Ægisíðuna

Björgunarbátur frá björgunarsveitinni Ársæli er nú á leiðinni að aðstoða skútu sem er strand við Ægisíðuna í Reykjavík. Að sögn Vaktstöð siglinga er engin hætta á ferðum en tveir eru í áhöfn skútunnar. Tilkynning barst um strandið um 19:45 í kvöld. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert