Morgunblaðshúsið í Kringlunni rifið?

Samkvæmt heimildum fréttastofu Útvarps eru áform uppi um að rífa gamla Morgunblaðshúsið við Kringluna og stækka verslunarrými hennar á svæðinu. Heimildarmaður fréttastofu segir að framkvæmdir gætu hafist á næsta ári, en þetta kom fram í kvöldfréttum Útvarps.

Haft er eftir öðrum heimildamanni að fyrirhugað sé að stækka Kringluna en enn eigi eftir að hanna þá stækkun og fá samþykki borgaryfirvalda fyrir henni. Fasteignafélagið Stoðir hf. á húsnæðið en það á einnig verslunarmiðstöðina Kringluna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert