Bifhjólasamtök fordæma háskaakstur

Bifhjólasamtök Suðurlands Postular og Bifhjólaklúbburinn Ernir Suðurnesjum fordæma allan háskaakstur bifhjóla og bifreiða hvort sem er innanbæjar eða á þjóðvegum landsins, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá samtökunum.

„Við hvetjum ökumenn til að sýna ábyrgð í umferðinni, fara að gildandi lögum og virða stöðvunarmerki lögreglu.

Jafnframt hörmum við slysið sem varð á Breiðholtsbrautinni á sunnudagskvöldið og vonum að aðrir ökumenn geti lært af þeim mistökum sem þar áttu sér stað," samkvæmt yfirlýsingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert