Dæmdur í sekt fyrir að láta birta áfengisauglýsingu

Hæstiréttur hefur dæmt framkvæmdastjóra heildsölufyrirtækisins Rolf Johansen & Co. í hálfrar milljónar króna sekt fyrir að láta birta auglýsingar um áfengan bjór í nokkrum íslenskum fjölmiðlum. Forsvarsmaður annars fyrirtækis var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir samskonar brot þar sem hvorki hann né fyrirtækið voru nafngreind í auglýsingunum eða vísað til þeirra með neinum hætti.

Hæstiréttur segir í niðurstöðum sínum varðandi Rolf Johansen & Co., að birting auglýsinganna, sem voru fimm talsins, væri andstæð áfengislögum. Hins vegar hafi framkvæmdastjórinn hvorki verið nafngreindur né vísað til fyrirtækisins í fjórum auglýsingunum og því bæri framkvæmdastjórinn ekki refsiábyrgð á þeim. Fimmta auglýsingin var auðkennd heimasíðu, sem beri með sér að hún sé á vegum Rolf Johansen & Co. Sé auglýsingin þar af leiðandi nægjanlega tengd því fyrirtæki svo að framkvæmdastjórinn verði talinn bera ábyrgð á henni.

Hæstiréttur féllst ekki á að ákvæði áfengislaga um auglýsingabann bryti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar eða skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert