Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpaði í gær þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem haldið er um þessar mundir í Genf. Í ávarpi sínu fjallaði félagsmálaráðherra meðal annars um stefnu nýrrar ríkisstjórnar í jafnréttismálum, einkum varðandi aðgerðir til að eyða launamun kvenna og karla.
Í fréttatilkynningu kemur fram að þing ILO, sem er elsta sérstofnun Sameinuðu þjóðanna, stofnuð árið 1919, var sett í Þjóðabandalagshöllinni í Genf 30. maí síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að þinginu ljúki á morgun, föstudag 15. júní. Aðildarríkjum ILO er skylt að senda til þingsins sendinefndir sem eru skipaðar fulltrúum ríkisstjórna, samtaka atvinnurekenda og samtaka launafólks. Þingið sækja 4.657 fulltrúar að þessu sinni en það er hið 96. í röðinni.
Í ávarpi sínu gerði ráðherra meðal annars grein fyrir áætlun ríkisstjórnarinnar í því skyni að eyða launamun kvenna og karla í þjónustu hins opinbera.
Ráðherra gerði einnig að umtalsefni virkan stuðning sendinefndar Íslands á þinginu við breytingar á drögum að alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði fiskimanna sem er eitt helsta málefni þingsins. Samþykkt um þetta efni náði ekki fram að ganga fyrir tveimur árum. Nú hefur hins vegar tekist víðtæk samstaða á þinginu um tillögu að samþykkt sem gert er ráð fyrir að verði afgreidd í dag með miklum meirihluta atkvæða fulltrúa.
Önnur málefni þingsins lúta að mótun stefnu fyrir ILO varðandi liðsinni við aðildarríkin til að takast á við neikvæð áhrif alþjóðavæðingar efnahagslífsins á félags- og vinnumál í heiminum. Þingið fjallar einnig um sjálfbær fyrirtæki.
Fyrir þinginu liggur tillaga um starfs- og fjárhagsáætlun ILO til næstu tveggja ára. Fjallað var um áætlunina í einni af nefndum þingsins. Formaður hennar var kosinn Gylfi Kristinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu. Aðrir í sendinefnd Íslands á þinginu voru Kristinn F. Árnason sendiherra, Ragnar G. Kristjánsson sendifulltrúi, Þorbjörn Jónsson sendifulltrúi og Ingólfur Friðriksson starfsnemi, allir frá fastanefnd Íslands í Genf, Sverrir Konráðsson, sérfræðingur hjá Siglingastofnun, frá samgönguráðuneyti, Magnús Norðdahl og Sævar Gunnarsson, forseti Sjómannasambands Íslands, frá Alþýðusambandi Íslands, og Hrafnhildur Stefánsdóttir og Jón H. Magnússon frá Samtökum atvinnulífsins, að því er segir í fréttatilkynningu.