Miðbær Selfoss hefur tekið miklum breytingum. Búið er að rífa verslunarhúsnæði sem setti sterkan svip á bæinn og blasti við ferðamönnum þar sem það stóð beint á móti austurenda Ölfusbrúarinnar. Lengi vel var verslunin Höfn rekin í þessu húsi og síðar Kjarvalsverslun og undir það síðasta 11/11 verslun.
Bárður Guðmundsson byggingafulltrúi í Árborg sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að verið væri að rýma fyrir nýjum miðbæ.