Ökumaður fólksbifreiðar ók útaf og fór bíllinn eina veltu við Biskupsháls skammt austan við Grímsstaði á fjöllum um klukkan hálf sjö í morgun. Einn farþegi var í bílnum en sakaði hvorki hann né ökumann. Að sögn lögreglunnar á Húsavík mun ökumaðurinn sem er á tvítugsaldri hafa misst athyglina við aksturinn með þessum afleiðingum.