Fimm voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var einn ökumaður tekinn á um 140 km hraða. Sá var með um 4 gr af amfetamíni í bílnum og er talið að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna er hann var stöðvaður síðdegis í dag. Annar ökumaður var stöðvaður á rúmlega 140 km hraða. Viðkomandi ökumaður var hins vegar ekki með ökuréttindi.