Bíll lenti á ljósastaur við Reykjanesbraut

Umferðaróhapp var á Reykjanesbrautinni undir morgun þegar bíll lenti á ljósastaur skammt austan við Grindavíkurveg. Að sögn lögreglu kenndi ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, til í höndum og var allur aumur í skrokknum og var því fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Lögreglan hefur eftir ökumanninum að hann hafi líklega dottað við aksturinn með þessum afleiðingum. Bíllinn var mikið skemmdur og var fjarlægður af vettvangi með kranabifreið.

Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur á Hafnarvegi í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert