Eldur í rusli á Lokastíg

Eldur kom upp í pappakössum og rusli í garði húss á Lokastíg 21 í Reykjavík um klukkan hálf tólf. Nágrannar gerðu viðvart og vegfarandi reyndi að slökkva eldinn með handslökkvitæki. Dælubíll frá Slökkviliðinu slökkti eldinn á skömmum tíma. Engan sakaði og skemmdir voru litlar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert