Slökkvilið og lögregla voru kölluð út um þrjúleytið í dag þegar mikill reykur sást frá Suðurlandsvegi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Í ljós kom að kveikt hafði verið í rusli á jörð í Hraungerðishreppi, en bannað er að brenna rusl á víðavangi nema að fenginni heimild frá lögreglu.